30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga

11. febrúar 2026

Á Menntadegi atvinnulífsins (Menntadagur atvinnulífsins) 11 febrúar 2026, undirrituðu mennta- og barnamálaráðherra Inga Sæland og skólameistari Tækniskólans viðauka við samkomulagið frá 2024 um byggingu nýja Tækniskólans í einum áfanga um 30.000 fermetra.

Fulltrúar Tækniskólans og Skólastrætis Tækniskólans fagna þessum áfanga sem er fram kominn eftir náið samráð við fulltrúa í mennta- og barnamálaráðuneytinu undanfarin misseri. Í samtalinu hafa fulltrúar Tækniskólans ítrekað mikilvægi þess að byggja Tækniskólanum viðeigandi húsnæði fyrir alla núverandi starfsemi skólans. Með áfangaskiptri framkvæmd hefði skólinn verið neyddur til að halda áfram starfsemi á fleiri stöðum, leigja áfram um 5.500 fermetra á öðrum stað og stæði frammi fyrir mun dýrari framkvæmd.

Eins og kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðið | 30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga, verður öll starfsemi skólans sameinuð á einum stað, í framúrskarandi og nútímalegu húsnæði, sem mun efla iðn-, starfs- og tækninám á Íslandi.

Að sögn mennta- og barnamálaráðherra, Ingu Sæland er "Stækkun Tækniskólans í Hafnarfirði er ekki munaður, hún er nauðsyn. Við viljum reisa skólann hratt og vel, í fullri stærð og eyða allri óvissu þar að lútandi. Við viljum ekki bútasaum heldur láta verkin tala með markvissri uppbyggingu, hér á höfuðborgarsvæðinu"

Fulltrúar Tækniskólans og ráðherra Inga Sæland.
Egill Jónsson, formaður stjórnar Tækniskólans og Skólastrætis, Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans, Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Jón B. Stefánsson, fv. skólameistari Tækniskólans og stjórnarmaður í Skólastræti, og Guðmundur Örn Óskarsson framkvæmdastjóri Skólastrætis. Skólastræti Tækniskólans ehf. stendur fyrir nýbyggingu og rekstri fasteigna Tækniskólans.