11. febrúar 2026

Á fundi bæjastjórnar Hafnarfjarðar 11. febrúar, 2026, ákvað bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að breytingu á deiliskipulagi suðurhafnar í kjölfar athugasemda sem bárust á auglýsingatíma tillögunnar í nóvember 2025. Meðhöndlun málsins færist nú til Skipulagstofnunnar í samræmi við skipulagslög til staðfestingar.
Breytingar eru eftirfarandi:
- Veghelgunarsvæði við Fornubúðir sýnt.
- Lóð minnkar og gata við Fornubúðir 5 breikkar.
- Byggingarmagni breytt í 30.000 m2 í samræmi við aðalskipulag.
- Nýtingarhlutfall lækkar.
- Hámarkshæðir lækkaðar á hluta byggingarreits.
- Skýringarmynd S002 (50.000 m2 þús skóli) felld út.
- Samgöngumat uppfært.
Helstu stærðir eftir breytingu:
Lóð Tækniskólans: 45.194m2
Byggingarmagn: 30.000m2
Nýtingarhlutfall: 0,66
Húshæðir: 1-5 hæðir +kjallari
Hjólastæði í hjólageymslu: ca. 400
Lágmarksfjöldi bílastæða á lóð: 420
Hámarksfjöldi bílastæða á lóð: 600
Hlekkur í fundargerð bæjarstjórnar, sjá dagskrálið nr. 6: 2501113 – Suðurhöfn, breyting á deiliskipulagi.
Fundargerð bæjarstjórnar 11. feb 2026.
Hlekkur í málið á Skipulagsgáttinni: Skipulagsgáttin mál 2025/1417.