Deiliskipulag öðlast gildi

27. maí 2026

Með auglýsingu í B deild stjórnartíðinda 27. maí 2026 hefur breyting á deiliskipulagi vegna nýs Tækniskóla við Flensborgarhöfn öðlast gildi samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010.

Í framhaldi af athugasemdum Skipulagsstofnunnar frá 17. apríl 2026, afgreiddi bæjarstjórn Hafnarfjarðar uppfærða tillögu að deiliskipulagi fyrir nýjan Tækniskóla á fundi sínum 6. maí 2027. Breytingar sem gerðar voru í uppfærðri tillögu sneru að hæðum bygginga, niðurrifi mannvirkja á svæðinu, uppfærðu skuggavarpi og staðsetningu spennistöðva.

Lykilstærðir eru eftirfarandi:
Lóð Tækniskólans: 45.194m2
Byggingarmagn: 30.000m2
Nýtingarhlutfall: 0,66
Húshæðir: 1-5 hæðir +kjallari
Hjólastæði í hjólageymslu: ca. 400
Lágmarksfjöldi bílastæða á lóð: 420
Hámarksfjöldi bílastæða á lóð: 600

Hlekkur í auglýsingu Stjórnartíðinda: AUGLÝSING um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað. | Stjórnartíðindi

Hlekkur í fundargerð bæjarstjórnar, sjá dagskrálið nr. 7: 2501113 – Suðurhöfn, breyting á deiliskipulagi.
Fundargerð bæjarstjórnar 6. maí 2026.

Hlekkur í málið á Skipulagsgáttinni þar sem nálgast má endanleg gögn: Skipulagsgáttin mál 2025/1417.